ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:Fallegt sumarhús á góðum stað í rólegu umhverfi á gróinni eignarlóð rétt utan við Selfossi.
Húsið er timburhús byggt árið1981, klætt að utan með málaðri timburklæðningu, bárujárn er á þaki.
Húsið er rafmagnskynnt og er búið að setja upp góða varmadælu í húsið.
Heildarstærð hússins er 45,3m2 og skiptist það í forstofu, baðherbergi, 2 svefnherbergi, stofu og eldhús auk geymslu.
Parket er á gólfi í forstofu.
Herbergin eru parketlög og er fataskápur í öðru þeirra.
Yfir herbergjum er svefnloft og er stigi upp á það í öðru herberginu.
Baðherbergi er nýlega endurnýjað, þar er lítil innrétting, upphengt WC og sturta með innbyggðum blöndunartækjum.
Stofa og eldhús eru í opnu parketlögðu rými og þar er upptekið loft. Snyrtileg innrétting er í eldhúsi og þar er hurð út á sólpall.
Góður sólpallur með skjólveggjum er við húsið.
Geymsluskúr er á lóðinni og er hann ekki inn í heildarstærð eignarinnar.
Lóðin er eignarlóð, 5.000 m2 og er hún öll gróin.
Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.