ÁRBORGIR FASTEIGNASALA 4824800 kynna:Fannborgartangi 14 Flúðum
Fallegt og vel skipulagt parhús á góðum stað á Flúðum.
Húsið er timburhús klætt að utan með lituðu báruáli lituðu timbri í bland og járn á þaki. Gluggar og hurðir eru ál/tré, þakkantur er klæddur með lituðu áli.
Heildarstærð eignarinnar er 164,5m2 og er sambyggður bílskúr 38,3m2 þar af.
Að innan skiptist eignin í Anddyri, tvö baðherbergi, 3 svefnherbergi, stofu, eldhús, þvottahús auk bílskúrs.
Nánari lýsing.Forstofa, flísar á gólfi og þar er fataskápur.
Baðherbergi, flísalagt bæði gólf og veggir, þar er gólfsturta með innbyggðum tækjum, baðkar og góð innrétting.
Minna baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir í sturtu, þar er gólfsturta og lítil innrétting.
Þvottahúsið er flísalagt og þar er góð innrétting fyrir tæki í vinnuhæð.
Eldhús, parketlagt og þar er stór innrétting með eyju.
Stofan er parketlög og þar er rennihurð út á baklóð.
Herbergin eru parketlögð og eru fataskápar í þeim öllum.
Bílskúr skilast fullmálaður með lökkuðu gólfi.
Hljóðdúkur er í öllum loftum nema í bílskúr.
Loftskiptikerfi er í öllu húsinu.
Lóðin skilast þökulögð og mulningur í innkeyrslu.
Nánari upplýsingar og skilalýsing á skrifstofu Árborga
[email protected]/4824800