Túngata 46, 820 Eyrarbakki
56.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á þremur hæðum
4 herb.
156 m2
56.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1900
Brunabótamat
59.550.000
Fasteignamat
42.050.000

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:
Skemmtilegt gamalt en mikið endurnýjað einbýlishús á Eyrarbakka.
Heildarstærð eignarinnar er 156,5 m2 og bílskúr 37,5 m2 þar af.
Húsið var byggt árið 1900 og er timburhús, klætt að utan með lituðu bárujárni, bárujárn er á þaki.
Húsið skiptist í 3 hæðir, í kjallara er herbergi, þvottahús og lagnarými. Miðhæð er anddyri, baðherbergi, stofa og eldhús. Á efstu hæð er eitt opið rými.
Nánari lýsing:
Anddyri er með flotuðu gólfi og fataskáp. Þar er hiti í gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja. Þar er handlaug, klósett, handklæðaskápur og baðkar með sturtu. Þar er hiti í gólfi.
Eldhús er með fínni innréttingu.
Stofan er opin, björt og falleg og þar er haldið vel í gamla tímann.
Efsta hæð er eitt stórt svefnherbergi/opið rými.
Trégólf eru í húsinu nema í kjallara þar sem gólf er steypt og málað.
Bílskúrinn er sérbyggður árið 1989 og er frekar hrár.
Pallur með heitum potti er á milli húss og skúrs.
Lóðin er gróin 453 m2. Lóðin er leigulóð frá Sveitarfélaginu Árborg.
Í heildina er um að ræða huggulegt gamalt einbýlishús á fallegri lóð á Eyrarbakka.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.
[email protected] eða í síma 482-4800.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.