ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:Gott sumarhús sem stendur á 6.800m2 eignarlóð skammt frá Borg í Grímsnesi.
Eignin er skráð 81,2m2 að stærð er timburhús klætt að utan með málaðri timburklæðningu og er plegel járn á þaki.
Húsið skiptist í forstofu, baðherbergi, 3 svefnherbergi, stofu og eldhús í opnu og rúmgóðu rými auk svefnlofts.
Nánari lýsing.
Flísar eru á gólfi í
forstofu og þar er skápur.
Baðherbergið er með harðparketi á gólfi, flísar eru á veggjum en þar er innrétting, tengi fyrir þvottavél og sturta.
Svefnherbergin eru öll með parketi á gólf, parket er einnig á holinu.
Stofa og eldhús eru í rúmgóðu, björtu og parketlögðu rými, loft er upptekið. Snyrtileg innrétting er í eldhúsi og í stofu er hurð út á sólpall.
Mjög rúmgott
svefnloft er yfir hluta hússins og er það parketlagt.
Sólpallur með skjólveggjum og heitum potti er við húsið en á pallinum er góð einangruð
geymsla.Lóðin er snyrtileg og mjög fallegt útsýni er frá húsinu.
Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.