Engjaland 4, 800 Selfoss
102.000.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
127 m2
102.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
2
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2024
Brunabótamat
83.680.000
Fasteignamat
72.200.000

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna:
Falleg vel skipulögð 127,9 2 m2 íbúð á annari hæð merkt 201, íbúðinni fylgir stæði í rúmgóðum bílakjallara. Engjaland 4 er nýtt fjölbýli fyrir 55 ára og eldri á góðum stað í austurhluta Selfoss.
Húsið er staðsteypt, klætt að utan með viðhaldslítilli álklæðningu, gluggar og hurðir eru ál/tré.
Í húsinu eru 14 íbúðir, lyfta er í húsinu og er húsið fullfrágengið að innan sem utan.
Að innan skiptist íbúðin í forstofu, þvottahús, baðherbergi, gestabaðherbergi, 2 svefnherbergi, stofu og eldhús sem eru úr björtu alrými.
Loftskiptikerfi með einfaldri stýringu er í íbúðinni.
Nánari lýsing:

Forstofan er parketlögð og þar er góður fataskápur.
Gestabaðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir, þar er salerni og handlaug.
Þvottahúsið er flísalagt, þar er góð innrétting fyrir tæki í vinnuhæð.
Herbergi er parketlagt og það er fataskápur.
Hjónaherbergi er parketlagt, þar er stór fataskápur. Innaf því er Baðherbergi og er það flísalagt bæði gólf og veggir en þar er gólfsturta með innbyggðum blöndunartækjum og falleg innrétting með steinborðplötu. Gólfhiti er á baðherbergi.
Í eldhúsi er stór innrétting með eyju og vönduðum heimilstækjum, steinborðplata er á borðum og gólf eru parketlögð.
Stofan er opin inní eldhúsið og er parket á gólfi og þar er útgengt á svalir.
Svalirnar eru 12,7 m2, yfirbyggðar með svalalokun.
Geymsla þessarar íbúðar er í kjallara og er hún 7,9 m2.
Stæði í bílakjallara fylgir íbúðinni og er gert ráð fyrir rafhleðslu fyrir rafmagnsbíla í hverju stæði.
Vandaðar innréttingar frá HTH eru í öllum íbúðum og eru heimilstæki frá Ormson. Gólfefni koma frá Parka. Steinn á borðum kemur frá S. Helgason.
Lóðin er frágengin og bílaplan er malbikað.

Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga
Sýnum samdægurs!
[email protected] eða í síma 482-4800.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er: 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% fyrir fyrstu kaupendur og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. kr. 2.700,- hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda skv. gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.