Engjaland 4, 800 Selfoss
99.900.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
127 m2
99.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2024
Brunabótamat
82.690.000
Fasteignamat
71.250.000

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna:
Vönduð og vel skipulögð íbúð á jarðhæð ásamt stæði í rúmgóðum bílakjallara í nýju fjölbýli fyrir 55 ára og eldri á góðum stað í austurhluta Selfoss.
Húsið er staðsteypt, klætt að utan með viðhaldslítilli álklæðningu, gluggar og hurðir eru ál/tré.
Í húsinu eru 14 íbúðir, lyfta er í húsinu og er húsið fullfrágengið að innan sem utan.
Íbúðin er alls 127,4m2 að stærð og er geymsla í kjallara 7,4m2 þar af.
Að innan skiptist íbúðin í forstofu, gestasnyrtingu,þvottahús, baðherbergi, 2 svefnherbergi, stofu og eldhús sem eru í björtu alrými.
Loftskiptikerfi með einfaldri stýringu er í íbúðinni.
Nánari lýsing:
Forstofan er parketlögð og þar er góður fataskápur.
Gestasnyrting er flísalögð bæði gólf og veggir.
Þvottahúsið er flísalagt, þar er góð innrétting fyrir tæki í vinnuhæð.
Herbergin eru bæði parketlögð, í hjónaherbergi er stór fataskápur.
Baðherbergið er innangengt úr hjónaherberginu og er það flísalagt bæði gólf og veggir en þar er gólfsturta með innbyggðum blöndunartækjum og falleg innrétting með steinborðplötu.
Í eldhúsi er stór innrétting með eyju og vönduðum heimilstækjum, steinborðplata er á borðum og gólf eru parketlögð.
Stofan er opin inní eldhúsið og er parket á gólfi.
Rennihurð út á rúmgóðar yfirbyggðar svalir er í borðstofu.
Geymsla er í kjallara og er 7,4m2 að stærð.
Vandaðar innréttingar frá HTH eru í öllum íbúðum og eru heimilstæki frá Ormson. Gólfefni koma frá Parka.
Stæði í bílakjallara fylgir íbúðinni og er gert ráð fyrir rafhleðslu fyrir rafmagnsbíla í hverju stæði.
Lóðin er frágengin og bílaplan er malbikað.
Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga
Sýnum samdægurs!
[email protected] eða í síma 482-4800.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er: 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% fyrir fyrstu kaupendur og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. kr. 2.700,- hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda skv. gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.