ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu.Fallegt og vel skipulagt endaraðhús í nýju hverfi á Selfossi.
Húsið er timburhús, klætt að utan með lituðu báruáli og Stac Bond klæðningu í bland, bárujárn er á þaki.
Heildarstærð eignarinnar er 96,7m2 og skiptist hún í forstofu, þvottahús, baðherbergi, 3 svefnherbergi, stofu og eldhús í opnu rými.
Nánari lýsing:
Forstofan er með flísum á gólfi og þar er góður fataskápur.
Þvottahúsið er flísalagt en þar er góð innrétting fyrir tæki í vinnuhæð.
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og hluti veggja en þar er snyrtileg innrétting með sérhandklæðaskáp og gólfsturta.
Herbergin eru 3 og eru þau öll með harðparketi á gólfi, fataskápar eru í þeim öllum.
Stofa og eldhús eru í opnu parketlögðu rými, stór innrétting með eyju og innbyggðum tækjum er í eldhúsi. Í stofu er hurð út á baklóð.
Steypt 3 tunnu sorptunnuskýli frá Steypustöðinni fylgja hverri íbúð, án timburs og pumpu.
Lóðin er þökulögð og mulningur er í innkeyrslu.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga
[email protected] eða í síma 482-4800.