Eyravegur 34, 800 Selfoss
46.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
66 m2
46.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2023
Brunabótamat
44.700.000
Fasteignamat
45.750.000

ÁRBORGIR FASTEIGNASALA 482 4800 kynnir í einkasölu:
Laus til afhendingar við kaupsamning!
Falleg og vel skipulögð 66,1fm, 3ja herbergja íbúð á 4.hæð að Eyravegi 34b.
Húsið er úr forsteyptum einingum og klætt með bárujárni við svalir. Gluggar og útihurðar eru úr ál/tré.
Að innan skiptist hún í anddyri, tvö svefnherbergi, stofu, eldhús og baðherbergi.
Nánari lýsing:
Parket er gólfi í stofu, eldhúsi og herbergjum. Baðherbergi er flísalagt og þar er góð gólfsturta, upphengt salerni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhúsinnrétting er rúmgóð, ljós á lit frá HTH og tæki frá AEG, uppþvottavél fylgir.
Svefnherbergin eru 2, skápar í þeim báðum.
Útgengt úr stofu á svalir, að auki er rúmgóður þakpallur við hlið íbúðarinnar, hann er þó í sameign.
Bílastæði eru malbikuð og lóðin snyrtilega frágengin.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign á jarðhæð.
Frábær staðsetning í nýju húsi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.

Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.
[email protected] eða í síma 482-4800.

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.