ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna:Fossheiði 60 íbúð 103
Góð útleigueining!
Um er að ræða 125m2 íbúð sem skiptist í 89,6m2 3ja herbergja íbúð á fyrstu hæð, 24,6m2 stúdíóíbúð í kjallara og 11m2 geymslu í kjallara.
Íbúð á fyrstu hæð er 3ja herbergja íbúð sem bætt hefur verið við einu herbergi á kostnað stofunnar, svalir í suðvestur. Parket er á gólfum í herbergjum en flísar eru á öðrum gólfum. Ágæt innrétting er í eldhúsi. Þvottahús og búr eru innaf eldhúsinu.
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir en þar er baðkar, sturta og lítil innrétting.
Gólf á svölum eru klædd með timbureiningum.
Íbúð í kjallara er studioíbúð sem var tekin í gegn fyrir 3 árum, settur stór gluggi með björgunaropnun, vifta frá baðherbergi og út auk þess sem baðherbergið var endurnýjað.
Geymslan er leigð út sér.
Engar framkvæmdir eru fyrirhugaðar í blokkinni og hússjóður stendur vel.
Þakið var tekið 2021, allt yfir farið og sett nýtt járn ofl.
Góð og vel staðsett íbúð með góðum leigutekjum
Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.