ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna:Mjög snyrtileg útsýnisíbúð á efstu hæð í vel staðsettu fjölbýli á Selfossi.
Blokkin er byggð árið 2006 og er klædd að utan með lituðu áli og timbri í bland. Lóðin er gróin og bílaplan er malbikað.
Íbúðin er 71,9m2 að stærð, geymsla er 6m2 þar af.
Íbúðin skiptist í forstofu, svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, stofu og eldhús.
Nánari lýsing:Flísar eru á gólfi í
forstofu og þar er fataskápur.
Svefnherbergið er parketlagt en þar er stór fataskápur.
Baðherbergið er flísalagt og þar er innrétting og sturta.
Innaf baðherbergi er
þvottahús með flísum á gólfi.
Eldhús og
stofa eru í opnu parketlögðu rými, í eldhúsi er nýleg innrétting með góðum tækjum og í stofu er útgengt á svalir.
Nýlegt parket er á gólfum, innrétting í eldhúsi ásamt tækjum eru nýleg.
Íbúðin er á efstu hæð og er mjög fallegt útsýni frá henni.
Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.