ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:Gott og vel skipulagt parhús í eftirsóttu hverfi á Selfossi.
Húsið er timburhús, klætt að utan með ljósri Duropal klæðningu, gluggar og hurðir eru mahogny. Heildarstærð eignarinnar er 163,4m2 og er sambyggður bílskúr 32,8m2 þar af.
Að innan skiptist eignin í forstofu, baðherbergi, þvottahús, hol, 3 svefnherbergi, stofu og eldhús auk bílskúrs. Flísar eru á gólfi í forstofu og þar er góður skápur. Sjónvarpsholið er flísalagt, flísar eru á gólfi í þvottahúsi og þar er fín innrétting.
Baðherbergi er mjög rúmgott, flísar eru á gólfi og veggjum en þar er hornbaðkar og góð innrétting.
Herbergin eru parketlögð og eru skápar í þeim öllum. Búið er að útbúa
fjórða herbergið innst í bílskúrnum sem er flísalagt og við herbergið er baðherbergi með sturtu. Hurð er út á sólpall að heitum potti í herberginu.
Eldhúsið er parketlagt með nýlegu parketi.
Parket er á stofu og þar er hurð útá sólpall á baklóð.
Bílskúr er klæddur og málaður, epoxy er á gólfi.
Bakgarður snýr í suðvestur og þar er stór sólpallur (um 90m2) með skjólveggjum og heitum potti er á baklóð, um 10m2 geymsluskúr er við pallinn.
Lóðin er gróin og mulningur er í innkeyrslu.
Í heildina er um að ræða vel skipulagt fjölskylduhús í grónu og eftirsóttu hverfi.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.
[email protected]