ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:Gráhella 6, 110,6 m2 raðhús
Vel skipulagt og viðhaldslétt raðhús í nýju hverfi á Selfossi. Stærð íbúðar er 110,6 m2, 4 herbergja og með skemmtilegu skipulagi.
Húsið er timburhús, klætt að utan með viðhaldslítilli eternít klæðningu og við í bland, bjart með stórum gluggum og gott innra skipulag er í húsinu.
Innra skipulag.
Anddyri er með fataskáp, innan við anddyri er gangur/hol þar sem eru tvö svefnherbergi og eru þau bæði parketlögð og með fataskápum.
Stofa og eldhús eru í sama rými. Innréttingar í eldhúsi eru tvítóna, efri skápar sprautulakkaðir hvítir en neðri hluti spónlagður með láréttum hvíttuðum eikarspón og borðplötur plastlagðar. ásamt hangandi háfi yfir eyju.
Úr stofu er útgengt á góðan sólpall sem er með skjólveggjum.
Baðherbergi með upphengdu salerni, flísalagðri rúmgóðri sturtu og innrétting sprautulökkuð hvít. Lagt fyrir þvottavél og þurrkara. Í geymslu eru lagnainntök.
Hjónaherbergi er parketlagt og rúmgóður fataskápur.
Innihurðar 220 cm og spónlagðar með sama efni og innréttingar. Spónlagðir fataskápar í svefnherbergjum.
Húsið er staðsett í nýju fjölskylduvænu hverfi á Selfossi og er skammt frá Sunnulækjaskóla auk þess sem leikskóli, FSu, verslun og íþróttaaðstaða er í göngufæri.
Malbikuðu bílastæði framan.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.
[email protected]