ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:Vel skipulagðar raðhúsaíbúðir í byggingu í nýju hverfi í Reykholti í Bláskógabyggð.
Húsið er timburhús klætt að utan með hvítu báruáli og smábáru í bland, þak er kraftsperru og klætt með lituðu járni.
Íbúðirnar eru 90,8m2 að stærð og skiptast skv teikningu í anddyri, þvottahús, baðherbergi, 3 svefnherbergi, stofu og eldhús.
Eignirnar afhendast tilbúnar að utan og fokheldar að innan skv skilalýsingu, lóð skilast grófjöfnuð.
Afhending er í júní 2025
Verð íbúða, endahúsin eru á 29.900.000 og miðjuhúsin á 28.900.000,-
Mögulegt er að fá húsin lengra komin eftir nánara samkomulagi.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.