Hraunhólar 10, 800 Selfoss
108.900.000 Kr.
Parhús/ Parhús á einni hæð
5 herb.
193 m2
108.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
2008
Brunabótamat
91.250.000
Fasteignamat
92.550.000

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu;
Vel skipulagt 193,9 m2 parhús með aukaíbúð á eftirsóttum stað á Selfossi.

Húsið er steypt, steinað að utan, þak er valmaþak klætt með bárujárni.
Heildarstærð eignarinnar er 193,9m2 og er sambyggður bílskúr 57,6m2 þar af. Í bílskúrnum er fullbúin íbúð.
Að innan skiptist eignin í forstofu, baðherbergi, þvottahús, 4 svefnherbergi, geymsluloft, stofu og eldhús auk íbúðar í bílskúr.
Flísar eru á gólfi í forstofu og þvottahúsi, í þvottahúsi er rúmgóð innrétting fyrir tæki í vinnuhæð og þar er salerni. Innangengt er í bílskúr úr þvottahúsi.
Svefnherbergin eru 4 og er parket á gólfi sem og fataskápar í þeim öllum.
Á svefnherbergisgangi er stigi upp á loft. Það er ófrágengið en þar væri hægt að vera með t.d sjónvarpshol eða geymslu (þar er ekki full lofthæð).
Eldhúsið er með rúmgóðri viðarlitaðri innréttingu, parket er á gólfi í eldhúsi og stofu. Í stofu er útgengt á góðan sólpall með grillskýli, heitum potti og geymsluskúr.
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir, þar er sturta með innbyggðum tækjum, innrétting með handlaug og handklæðaskápur.
Bílskúr er útbúinn sem íbúð, þar er baðherbergi, eldhús, stofa og svefnloft þar sem upptekið loft er í skúrnum. Bílaplan er malbikað.
Í heildina er um að ræða vel skipulagt parhús með auka íbúð á góðum stað.

Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.
arborgir@arborgir.is eða í síma 482-4800.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.