ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu;
Snyrtilegt raðhús á góðum staðEignin er alls 128 m2, bílskúr er 38,2 m2 þar af. Húsið er byggt úr timbri, klætt að utan með litaðri álklæðningu og aluzink er á þaki.
Eignin telur forstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi, hol, þvottahús, eldhús og stofu.
Komið er inn í flísalagða forstofu. Stofa og eldhús eru með parketi á gólfi, smekkleg innrétting í eldhúsi með góðu skápaplássi. úr stofu er útgengt í baklóð.
Baðherbergi er með stórri flísalagðri sturtu, baðkari, snyrtilegri innréttingu og upphengdu wc. Veggir eru flísalagðir á baðinu.
Þvottahús er með flísum á gólfi, fín innrétting og skolvaskur.
Bílskúr er með steyptu gólfi og rafmagnsopnun, útgengt úr skúr í bakgarð.
Tvö svefnherbergi eru í húsinu og bæði með parketi á gólfi. Stór fataskápur í hjónaherbergi.
Lóð er þökulögð og gróin, steypt stétt er á baklóð og innkeyrsla er hellulögð.
Gólfhiti er í öllu húsinu.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.
arborgir@arborgir.is