ÁRBORGIR FASTEIGNASALA kynnir í einkasölu:
Móstekkur 58B, 800 SelfossUm er að ræða endaraðhús á einni hæð með 3 svefnherbergjum og bílskúr.
Möguleiki er á fjórða herberginu í enda bílskúrs.Húsið er timburhús klætt að utan með lituðu járni, litað járn er á þaki. Heildarstærð eignarinnar er 151,7m2 og er sambyggður bílskúr 48,6m2 þar af.
Að innan skiptist eignin í anddyri, þvottahús, baðherbergi, 3 svefnherbergi, stofu, eldhús auk bílskúrs.
Nánari lýsing:
Parket er á gólfi í forstofu og þar er fataskápur.
Herbergin eru öll með vínilparketi á gólfi, fataskápar eru í þeim öllum.
Baðherbergið er flísalagt, bæði gólf og hluti veggja. Þar er innrétting með handlaug og sturta með innbyggðum tækjum.
Flísar eru á gólfi í þvottahúsi og þar er innrétting fyrir tæki í vinnuhæð og skolvaskur. Þaðan er innangengt í bílskúr.
Stofa og eldhús eru í opnu rými, þar er vínilparket á gólfi. Falleg innrétting með eyju er í eldhúsi. Úr stofu er hurð út á baklóð.
Innréttingar eru allar frá HTH, innihurðir frá Parka.
Bílskúr er fullmálaður og flísalagður. Innst í bílskúr er geymsla/herbergi sem er parketlagt. Þar er útgengt á baklóð.
Lóðin skilast grófjöfnuð og er búið er að skipta um jarðveg í bílaplani og setja í mulning.
Steypt 3 tunnu sorptunnuskýli frá Steypustöðinni fylgir hverri íbúð, án hurða og pumpu.
Nánari upplýsingar og skilalýsing á skrifstofu Árborga.
arborgir@arborgir.is / 4824800