ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:
Vönduð og vel skipulögð íbúð í fallegu og vel staðsettu lyftuhúsi á Selfossi. Húsið er staðsteypt, steinað að utan, þak er flatt klætt með tvöföldu lagi af pappa. Gluggar eru ál/tré. Lóðin er öll malbikuð og frágengin. Sameign er mjög snyrtileg og fullfrágengin. Sameiginleg hjól/vagnageymsla er á fyrstu hæð, sameign er öll flísalögð sem og stigahús á milli hæða. Lyfta er í húsinu.
Fallegar innréttingar og fataskápar eru í öllum íbúðum, flísar og parket er á gólfum. Baðherbergi eru flísalögð og er gólfsturta í þeim. Skipulag íbúðanna er mjög gott og íbúðirnar mjög bjartar og skemmtilegar. Aukin lofthæð er í íbúðunum eða um 2,7m2 á annarri hæð, 2,9m á þeirri þriðju og innfeld lýsing er í loftum. Í hverri íbúð er dyrasími með myndavél.
Íbúð 209 er alls 76,9m2 að stærð og skiptist í forstofu, 2 svefnherbergi, geymslu (með glugga og gæti nýst sem svefnherbergi) baðherbergi, stofu og eldhús sem eru í opnu og rúmgóðu rými. Úr stofu er útgengt á ca. 7m2 svalir.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga eða í síma 894 2045 Þorsteinn og 865 9774 Þórir.