Boðavík 15, 800 Selfoss
93.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
161 m2
93.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2023
Brunabótamat
0
Fasteignamat
52.850.000

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna:
Fallegt og einstaklega vel skipulagt enda raðhús með bílskúr á einni hæð í nýju hverfi á Selfossi.

Tilbúið til afhendingar við kaupsamning

Húsið er timburhús, klætt að utan með lituðu stáli, bárujárn er á þaki, gluggar og hurðir eru úr ál/tré.
Heildarstærð eignarinnar er 161,7m2 og er sambyggður bílskúr 31,1m2 þar af. 
Að innan skiptist eignin í forstofu, baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús, 3 svefnherbergi, sjónvarpshol, stofu og eldhús sem eru í opnu rými auk bílskúrs. Möguleiki er á að útbúa fjórða herbergið í skúrnum.
Nánari lýsing eignar:                             
Forstofa er flísalögð og þar er góður skápur.
Stofa og eldhús í opnu alrými, harðparket er á gólfi en í eldhúsi er falleg innrétting frá HTH með góðum innbyggðum tækjum. Innfeld lýsing er í loftum. 
3 Svefnherbergi með harðparketi á gólfum og eru fataskápar í þeim öllum. Í hjónaherbergi er útgengt á baklóð.
Harðparket er á gólfi í sjónvarpsholi.
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og hluti veggja en þar er góð innrétting og gólfsturta.
Gestasnyrting er flísalögð.
Þvottahús er flísalagt en þar er stór innrétting fyrir tæki í vinnuhæð, í þvottahúsi er innangent í bílskúr
Bílskúr skilast klæddur og málaður.
Lóð skilast þökulögð og mulningur í innkeyrslu.
Falleg og mjög vel skipulögð eign í nýju og skemmtilegu hverfi á Selfossi.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.
arborgir@arborgir.is

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.