Atlavík 19, 800 Selfoss
66.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
100 m2
66.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2023
Brunabótamat
0
Fasteignamat
38.900.000

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna
-Tilbúið til afhendingar við kaupsamning-

Fallegt og vel skipulagt raðhús í nýju hverfi á Selfossi.
Húsið er timburhús, klætt að utan með lituðu báruáli og Stac Bond klæðningu í bland, bárujárn er á þaki. Heildarstærð eignarinnar er 100,4m2 og skiptist hún í forstofu, þvottahús, baðherbergi, 3 svefnherbergi, stofu og eldhús í opnu rými.
Flísar eru á gólfi í forstofu og þar er fataskápur. Þvottahúsið er flísalagt, þar er góð innrétting fyrir tæki í vinnuhæð.
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og hluti veggja, þar er rúmgóð gólfsturta með innbyggðum tækjum og góð innrétting.
Herbergin eru parketlögð og eru skápar í þeim öllum. 
Stofa og eldhús eru í opnu rými, smekkleg innrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél er í eldhúsi en í stofu er hurð útá baklóð.
Innfelld ledljós eru í flestum rýmum.
Lóðin skilast þökulögð og mulningur er í innkeyrslu.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.