ÁRBORGIR SELFOSSI S: 482 4800 kynna í einkasölu.Eyravegur 50, Selfossi. 101,1 fm íbúð á þriðju hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi.
Að innan skiptist eignin í anddyri, þvottahús, geymslu, stofu, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi auk sér geymslu í kjallara.
Nánari lýsing:
Andyrri er flísalagt, þar er fataskápur.
Eldhúsið er með fínni viðarlitaðri innréttingu með góðu skápaplássi. Parket á gólfi.
Stofan er stór og björt, þar er parket á gólfi og útgengt á góðar svalir.
Baðherbergi er rúmgott, það er flísalagt, bæði gólf og hluti veggja. Þar er baðkar með sturtu og fín innrétting með handlaug.
Svefnherbergi eru tvö, bæði parketlögð. Hjónaherbergi er rúmgott og þar eru mjög rúmgóðir skápar, einnig eru skápar í barnaherberginu.
Þvottahús er flísalagt, þar er skolvaskur og pláss fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla innan íbúðar er parketlögð, einnig er sér geymsla á fyrstu hæð sem er skráð 4,9 fm.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.
arborgir@arborgir.is eða í síma 482-4800.