Birkibyggð 6, 846 Flúðir
123.000.000 Kr.
Sumarhús
4 herb.
139 m2
123.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2017
Brunabótamat
76.800.000
Fasteignamat
60.650.000

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:

Birkibyggð 6, 140fm glæsilegt og skemmtilega skipulagt heilsárshús sem stendur á  4.921,9m2 eignarlóð rétt við Flúðir.
Húsið er byggt 2017 úr timbri og klætt að utan með læstri litaðri álklæðningu. Húsið var klætt að utan núna í sumar. Þak er einhalla og er þakkantur klæddur með lituðu áli Gluggar eru álgluggar.
Hitveita er í húsinu, hiti í gólfum og Free@home hússtjórnarkerfi er í húsinu.
Að innan skiptist eignin í forstofu. stofu, borðstofu, eldhús, 3 svefnherbergi, 2 baðherbergi.
Nánari lýsing:
Forstofa er með vínilparketi og þar er rúmgóður fataskápur. Stofan er björt og rúmgóð, gólfsíðir gluggar eru í rýminu og er vínilparket á gólfi. Í lofti er bandsöguð hnota sem gefur rýminu skemmtilegan karakter.. Útgengt úr stofu á verönd.
Eldhús er með sérsmíðaðri innréttingu úr dökkbæsuðum hlyn. Stór eyja og mikið skápapláss. Steinborðplata er í eldhúsi og þar er smekkleg lýsing og gott vinnupláss.
Hjónasvítan er rúmgóð og góð lofthæð. Rúmgóður fataskápur og parketflísar á gólfi, útgengi úr herberginu á verönd. Baðherbergi er inn af hjónaherbergi. Stór gólfsturta  með dökkum flísum á veggjum, parketflísar á gólfi og upphengt salerni.
Tvö önnur svefnherbergi eru í húsinu bæði með parketflísum á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi í svefnálmu er með  parketflísum á gólfi, svartar flísar á hluta af veggjum, stór sturta með glervegg beint á gólf, upphengt salerni, dökk innrétting undir vaski og opnanlegur gluggi.
Einstaklega smekklegt og vel skipulagt hús þar sem ekkert herfur verið til sparað.
Lóðin er þökulögð og stórt steypt plan er fyrir framan bústaðinn og stór steypt verönd á baklóð.

Svæðið er lokað með símahliði.
Fyrir liggur samþykki sveitastjórnar á breytingu á aðalskipulagi fyrir þetta hverfi um að heimil verði heilsárs búseta á svæðinu.
Nánari upplýsinnar á skrifstofu Árborga
arborgir@arborgir.is


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.