ÁRBORGIR FASTEIGNASALA 4824800 kynnir í einkasölu:Vel skipulögð og smekkleg íbúð á 2. hæð í vönduðu + 50 ára lyftu fjölbýli við Austurveg 39, á Selfossi.
Húsið er einangrað að utan og veggir klæddir sléttu og báruðu áli í bland og viðarklæðning við innganga og á svölum. Gluggar eru ál/tré.
Íbúðin ásamt geymslu er skráð 109,4 fm.
Að innan skiptist hún í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi auk geymslu sem er í kjallara.
Snyrtileg eldhúsinnrétting frá HTH með vönduðum heimilistækjum. Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu og björtu rými þar sem útgengt er út á fínar svalir sem eru með svalalokun og viðargólfi.
Svefnherbergin eru parketlögð og með fataskápum. Baðherbergi er með flísum á gólfi, upphengdu salerni og rúgmóðri gólfsturtu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara eru inni á baðherbergi.
Sérgeymsla í kjallara er 9,5 fm og fylgir íbúðinni.
Sameign er snyrtileg og stutt í verslun og aðra þjónustu.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga
arborgir@arborgir.is