Kálfhólar 15, 800 Selfoss
99.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
5 herb.
163 m2
99.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2004
Brunabótamat
75.750.000
Fasteignamat
86.050.000

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu.
Snyrtilegt einbýlishús í eftirsóttu hverfi rétt við Sunnulækjarskóla á Selfossi. Húsið er steypt, hraunað og málað að utan, þak er valmaþak klætt með bárujárni. Gluggar og hurðir eru úr PVC. Heildarstærð eignarinnar er 163,0m2 og er sambyggður bílskúr 33,9m2 þar af. Að innan skiptist eignin í forstofu, gestasnyrtingu, hol, þvottahús, baðherbergi, 4 svefnherbergi, stofu og eldhús auk bílskúrs. Flísar eru á gólfi i forstofu og gestasnyrtingu. Parket er á holi og eldhúsi, í eldhúsi er nýleg innrétting með góðum tækjum. Stofan er parketlögð og þar er útgengt á sólpall. Upptekið loft er í stofu holi og eldhúsi. Herbergin eru parketlögð og eru fataskápar í þeim öllum. Baðherbergi er flíslagt bæði gólf og veggir en þar er fín innrétting og gólfsturta. Flísar eru á gólfi í þvottahúsi og þar er ágæt innrétting og hurð út á lóð. Stigi er uppá geymsluloft í þvottahúsi. Bílskúr er rúmgóður og er geymsluloft yfir hluta hans.
Stór sólpallur með skjólveggjum og heitum potti er við húsið, innkeyrsla er stór og hellulögð, garður er gróinn og snyrtilegur.
Staðsetning er mjög góð en húsið stendur í um 3ja mínútna göngufæri við Sunnulækjarskóla.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.
arborgir@arborgir.is

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.