Víðivellir 10, 800 Selfoss
71.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
4 herb.
130 m2
71.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1964
Brunabótamat
55.900.000
Fasteignamat
60.900.000

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:
Skemmtilegt einbýlishús við Víðivelli 10 á Selfossi. Húsið er timburhús klætt að utan með máluðu timbri, bárujárn er á þaki. Heildarstærð eignarinnar er 130,5m2 en byggingarleyfi og teikningar liggja fyrir, fyrir 54,9 m2 bílskúr.
Að innan telur húsið forstofu, geymslu, baðherbergi, gestasalerni, 3 svefnherbergi, hol, þvottahús, stofu og eldhús.
Nánari lýsing:
Forstofa er flísalögð, þar er gestasalerni og geymsla sem einnig væri hægt að nota sem 4 herbergið.
Eldhús er með nýju parket á gólfi, það er rúmgott með góðu skápaplássi. Þar er hvít innrétting.
Stofa er með nýju parket á gólfi og þaðan er útgengt á góðan sólpall með heitum potti og köldu kari.
Herbergin eru rúmgóð, öll eru þau með nýju parket á gólfi.
Baðherbergið er flísalagt, bæði gólf og hluti veggja. Þar er salerni, innrétting með handlaug, handklæðaskápur og sturtuklefi.
Í þvottahúsi eru flísar á gólfi, þar eru góðir fataskápar.
Garðurinn er stór og skjólsæll, þar er góður geymsluskúr.
Um er að ræða flotta eign á góðum stað í næstu götu við skóla og leikskóla.

Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga. 
Arborgir@arborgir.is eða í síma 482-4800

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.