Tryggvagata 14, 800 Selfoss
57.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Tvíbýli
4 herb.
130 m2
57.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1961
Brunabótamat
63.000.000
Fasteignamat
49.250.000

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:
Tryggvagata 14 800 Selfoss.

Björt og rúmgóð efri sérhæð með sérinngangi í tvíbýlishúsi við miðbæ Selfoss.
Húsið er steypt, klætt að utan með Steni-klæðningu, bárujárn er á þaki. Heildarstærð íbúðarinnar er 130,9m2, íbúðin sjálf er 104,1, stigahús og kjallari eru 26,8m2.
Íbúðin skiptist í forstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, geymslu, rúmgóða stofu, borðstofu og eldhús. Teppalagður stigi er upp á hæðina. Herbergin eru parketlögð, í hjónaherbergi er góður skápur og útgengt á svalir sem snúa til suðurs. Baðherbergið er flísalagt bæði gólf og veggir, þar er baðkar, upphengt wc og innrétting. Flísar eru á gólfi í geymslu. Parket er á gólfi á gangi, borðstofu og stofu, í stofu er útgengt á svalir sem snúa til suðurs. Eldhúsið er parketlagt og þar er snyrtileg innrétting.
Í kjallara eru 2 geymslur, önnur þeirra er parketlögð en innaf því er salerni. Gluggi er á geymslunni og því hægt að nýta sem 4. svefnherbergið
Íbúðinni fylgir góður sólpallur í séreign. Lóðin er gróin og mulningur er í innkeyrslu.
Staðsetning er mjög góð og er göngufæri í skóla, verslanir og þjónustu.
Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga eða á arborgir@arborgir.is 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.