ÁRBORGIR FASTEIGNASALA SELFOSSI S 482 4800 kynna:
Rúmgóð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð ásamt stæði í bílageymslu og 67m2 verönd.Elliðabraut 10 íbúð merkt 0225
Húsið er steypt og byggt árið 2021.
Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, baðherbergi, tvö svefnherbergi (annað með auka baðherbergi)
Forstofa er með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í einu opnu rými með útgengi út á sérafnotaflöt sem er sirka 67fm. Parket á gólfi.
Í
eldhúsi er vönduð innrétting sem nær alveg upp í loft, innbyggð uppþvottavél og ísskápur.
Baðherbergi er flísalagt og þar er fín innrétting, uppghengt salerni og handklæðaofn. Einnig fín innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Svefnherbergi er rúmgott, parket á gólfi og fataskápar.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum. Inn af hjónaherbergi er sérbaðherbergi með gólfsturtu, innréttingu með speglaskápi, handklæðaofn og upphengt salerni.
Sérgeymsla í sameign og þar er einnig að finna hjóla og vagnageymslu.
Sér bílastæði í bílakjallara.Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga
arborgir@arborgir.is