Birkihólar 3, 800 Selfoss
84.900.000 Kr.
Parhús/ Parhús á einni hæð
4 herb.
155 m2
84.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2008
Brunabótamat
76.400.000
Fasteignamat
79.050.000

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu;
Vel skipulagt 155,4 m2 parhús á góðum stað í suðurbyggðinni á Selfossi.
Húsið er timburhús, klætt að utan með lituðu járni og bandsöguðu timbri í bland, bárujárn er á þaki.
Heildarstærð eignarinnar er 155,4m2 og er sambyggður bílskúr 37,8m2 þar af.
Að innan skiptist eignin í forstofu, baðherbergi, þvottahús, 3 svefnherbergi, stofu og eldhús auk rúmgóðs bílskúrs.
Flísar eru á gólfi í forstofu og þvottahúsi, í þvottahúsi er snyrtileg innrétting.
Parket er á gólfi í herbergjum, fataskápar eru í tveim þeirra. 
Eldhúsið er með snyrtilegri innréttingu, parket er á gólfi í eldhúsi og stofu.
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir, þar er sturta með innbyggðum tækjum og snyrtileg innrétting.
Bílskúr er klæddur og málaður, flísar eru á gólfi. loft er upptekið í skúrnum. Í enda hans er geymsla og er geymsluloft yfir henni.
Hellulögð stétt og sólpallur er framan við húsið, lóðin er gróin og mulningur er í innkeyrslu.
Í heildina er um að ræða vel skipulagt parhús á góðum stað.
Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.