ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu;Björt og vel skipulögð íbúð á annarri hæð í nýju fjölbýli í nýjum miðbæ á Selfossi. Húsið er steypt, klætt að utan með málaðri klæðningu og er litað járn á þaki. Íbúðin er á annarri hæð, 82,3m2 að stærð og skiptist í forstofu, baðherbergi, 2 svefnherbergi, stofu og eldhús auk geymslu. Flísar eru á gólfi í geymslu og þar er tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og hluti veggja, þar er innrétting og quartzsteinn á boðri og sturta. Parket er á gólfi í forstofu og herbergjum og eru skápar í báðum herbergjum og forstofu, Stofa og eldhús eru í opnu rými, parket er á gólfi og í eldhúsi er góð innrétting með quartzsteini á borði og innbyggðum tækum. Hurð er út á stórar yfirbyggðar svalir í eldhúsi. Aukin lofthæð er í íbúðinni og er hún mjög vönduð og falleg.
Íbúðin er Svansvottuð, en slíkar íbúðir eru almennt taldar betri fyrir umhverfið og heilsuna, enda eru strangar kröfur um innihald skaðlegra efna í öllu byggingarefni. Í íbúðinni hefur verið tryggð góð innivist með góðri loftræstingu og hljóðvist. Hönnun byggingarinnar miðar að því að orkunotkun sé hagkvæm.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga fasteignasölu í síma 482-4800 eða á arborgir@arborgir.is