Fosstún 13, 800 Selfoss
84.900.000 Kr.
Parhús/ Parhús á einni hæð
4 herb.
154 m2
84.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2002
Brunabótamat
71.400.000
Fasteignamat
76.250.000

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:

Fallegt og vel skipulagt parhús á frábærum stað í grónu hverfi.
Húsið er timburhús, klætt að utan með litaðri steniklæðningu, bárujárn er á þaki.
Heildarstærð eignarinnar er 154,3 m2 og er sambyggður bílskúr 44,2m2 þar af. 
Að innan skiptist eignin í forstofu, hol, 3 svefnherbergi, þvottahús, baðherbergi, stofu, eldhús auk bílskúrs.
Flísar eru á gólfi í forstofu og þar er góður fataskápur. Flísar eru á holi og stofu, í stofu er hurð útá sólpall sem er á baklóð. Þar er góður pallur með skjólveggjum.
Herbergin eru parketlögð og eru fataskápar í þeim öllum.
Baðherbergi er flísalagt, fín innrétting og góð gólfsturta.
Í eldhúsi er smekkleg sérsmíðuð innrétting, flísar á gólfi og borðkrókur.
Flísar eru á þvottahúsi og þar er innrétting og skápur.
Bílskúr er flíasalagður og þar er geymsluloft yfir hluta skúrsins, einnig herbergi innst í skúrnum og útgengt í bakgarð

Viðarpallur með skjólveggjum er á baklóð hússins, lóðin er gróin og snyrtileg, einangraður geymsluskúr.
Bílaplan er malbikað og hellulögð gönguleið.
Snyrtileg og vel staðsetta eign sem vert er að skoða.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.
arborgir@arborgir.is

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.