ÁRBORGIR FASTEIGNASALA S: 482-4800 kynnir í einkasölu:Eskilundur 5. Sumarhús í Veiðilundi á Þingvöllum. Húsið er timburhús með lituðu járni á þaki. Húsið er skráð 51,4 m2 og svefnloft 27,3 m2 og er það byggt árið 2005 skv. Þjóðskrá.
Að innan skiptist húsið í anddyri, tvö svefnherbergi, baðherbergi, svefnloft, eldhús og stofu.
Nánari lýsing:
Alrými er með stofu, borðstofu og eldhúsi. Útgengt er úr stofu út á góðan og skjólsælann sólpall.
Eldhús er með ljósri innréttingu, ágætum tækjum og ísskáp.
Tvö svefnherbergi eru á neðri hæð, hjónarúm í öðru þeirra og 2x einbreið rúm í hinu.
Baðherbergi er með salerni, sturtuklefa, þvottavél og lítilli innréttingu með handlaug.
Svefnloft er rúmgott, þar er hjónarúm og nýlegt teppi á gólfi.
Flísar eru á gólfi á öllum rýmum á neðri hæð. Svefnloft er teppalagt.
Gólfhiti er á neðrihæð, NIBE varmadæla loft í vatn. Hægt að stýra með appi.
Sumarbústaðurinn stendur á 1602,0 m² eignarlóð.
Nýlegt innbú fylgir með í kaupum.
Kostnaður við bústaðinn ca:
Sumarhúsafélag kr. 37.500,-
Fasteignagjöld 2024 kr. 166.556,-
Rafmagn kr. 14.000,- (ca, fer eftir notkun)
Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.
arborgir@arborgir.is eða í síma 482-4800