Fosstún 11, 800 Selfoss
84.900.000 Kr.
Parhús/ Parhús á einni hæð
4 herb.
171 m2
84.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2001
Brunabótamat
74.600.000
Fasteignamat
81.100.000

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:

Fallegt og vel skipulagt parhús á frábærum stað í grónu hverfi. Húsið er timburhús, klætt að utan með litaðri Steniklæðningu, bárujárn er á þaki.
Heildarstærð eignarinnar er 171,2m2 og er sambyggður bílskúr 47,5m2 þar af. 
Að innan skiptist eignin í forstofu, hol, 3 svefnherbergi, þvottahús, baðherbergi, stofu, eldhús auk bílskúrs.
Flísar eru á gólfi í forstofu og þar er góður fataskápur. Parket er á holi og stofu, í stofu er hurð útá sólpall sem er á baklóð.
Herbergin eru parketlögð og eru fataskápar í þeim öllum. Baðherbergi er flísalagt, veggir eru klæddir með baðþiljum og þar er falleg innrétting og stór sturta.
Í eldhúsi er smekkleg innrétting, parket er á gólfi. Flísar eru á þvottahúsi og þar er fín innrétting og skápur. Bílskúr er klæddur og málaður, geymsla er innst í skúrnum og geymsluloft er yfir hluta skúrsins.
Sólpallur með skjólveggjum er á baklóð hússins, lóðin er gróin og snyrtileg, steypt stétt er framan við húsið og innkeyrsla er malbikuð.

Snyrtileg og vel staðsetta eign.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.
arborgir@arborgir.is


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.