Víðivellir 1, 800 Selfoss
129.600.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús með aukaíbúð
9 herb.
288 m2
129.600.000
Stofur
3
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
1956
Brunabótamat
116.850.000
Fasteignamat
95.650.000

 ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu;
Reisulegt og mjög vel staðsett einbýlishús á Selfossi með aukaíbúð.
Eignin er alls 288,7 m2, kjallari, hæð og ris 236,7 m2 og sérbyggður bílskúr 52 m2.

Á miðhæð er flísalögð forstofa og hol, parketlagt herbergi, gestasalerni sem er með flísum á gólfi og uppá veggi, 2 parketlagðar samliggjandi stofur með góðum gluggum, og flísalagt eldhús með fallegri innréttingu sem er sprautulökkuð. Stigi er uppá efri hæð og þar eru 2 parketlögð barnaherbergi, hjónaherbergi sem er flísalagt og þar eru stórar svalir og fataskápur, baðherbergi með flísum á gólfi og hluta veggja, hornbaðkar og góð innrétting. Búið er að setja þakglugga á baðherbergið.

Í kjallara er er nýlega standsett íbúð sem skiptist í forstofu, baðherbergi, gang, stofu, svefnherbergi og eldhús. Flísar eru á öllum gólfum. Góð innrétting er í eldhúsi og smá borðkrókur, baðherbergi er rúmgott, þar er gólfsturta, innrétting og aðstaða fyrir þvottavél.

Bílskúr er sérbyggður og er hann flísalagður og mjög rúmgóður.
Stórt geymsluloft er í bílskúrnum.

Bílaplan er hellulagt með hitalögn. Garður er gróinn og snyrtilegur. Falleg hellulögn er fyrir framan húsið og búið er að gera góða afgirta timburverönd sem snýr beint í kvöldsólina.

Mjög vel staðsett og skemmtilegt hús sem vert er að skoða.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.
arborgir@arborgir.is


 

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.