Heiðarstekkur 23, 800 Selfoss
64.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
3 herb.
96 m2
64.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2020
Brunabótamat
49.200.000
Fasteignamat
61.450.000

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:
Vel skipulögð raðhúsaíbúð í nýju hverfi á Selfossi rétt við Stekkjarskóla.
Húsið er timburhús, klætt að utan með lituðu járni, litað járn er á þaki. Að innan skiptist húsið í forstofu, þvottahús, baðherbergi, 3 svefnherbergi, stofu og eldhús.
Flísar eru á gólfi í forstofu og þar er fataskápur. Herbergin eru parketlögð, fataskápar eru í þeim öllum. Baðherbergi er flísalagt bæði gólf sem og veggir í gólfsturtu og þar er góð innrétting. Þvottahúsið er flísalagt og þar er góð innrétting fyrir tæki í vinnuhæð.
Eldhús og stofa eru í opnu rými, snyrtileg innrétting er í eldhúsi en í stofu er útgengt á sólpall sem snýr til suðurs.
Steypt verönd með skjólveggjum er á baklóð, lóðin er þökulögð og mulningur er í innkeyrslu.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.