Kjarrhólar 18, 800 Selfoss
105.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
4 herb.
212 m2
105.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2005
Brunabótamat
97.900.000
Fasteignamat
100.300.000

ÁRBORGIR FASTEIGNASALA kynnir í einkasölu:
Kjarrhólar 18.
212,9 fm einbýlishús með sambyggðum bílskúr (58 fm)


Húsið er byggt úr timbri árið 2005 og er klætt að utan með Duropal klæðningu en litað járn er á þaki.  Útihurðir og gluggar eru úr mahogany.  
Að innan er skiptist eignin í þrjú svefnherbergi, stofu, sjónvarpshol, eldhús, baðherbergi, forstofa og þvottahús.  Að auki er annað baðherbergi innaf hjónaherbergi.  

Parket er á gólfum í herbergjum en flísar á öðrum gólfum en hitalagnir eru í gólfunum, stýringar eru á gólfhitanum.  
Upptekin loft með halogenlýsingu eru í eldhúsi, stofu og holi.  Í eldhúsinu er vönduð innrétting og góður borðkrókur.
Á aðalbaðherbergi hússins er sturta, hornbaðkar, upphengt wc og fín innrétting.  Á minna baðinu er sturta, upphengt wc og innrétting. 
Í þvottahúsinu er ljós innrétting með skilvask og útgengi í baklóð. 
Fataskápar eru í herbergjunum sem og forstofunni.
Bílskúrinn er flísalagður og mjög rúmgóður og er innangengt úr anddyri.
Útgengt er úr hjónaherbergi á stóran nýlegan sólpall sem er með heitum pott, einnig er útgengt úr stofunni á sama pall.
Pallurinn er úr lerki og lóðin þökulögð.
Bílaplan er malbikað og hellur framan við húsið.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga
arborgir@arborgir.is
4824800

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.