Lágengi 30, 800 Selfoss
85.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á tveimur hæðum
6 herb.
212 m2
85.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1980
Brunabótamat
90.750.000
Fasteignamat
82.850.000

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:
Reisulegt tveggja hæða raðhús í rólegum botnalanga í grónu hverfi á Selfossi. Húsið er staðsteypt, múrað og málað utan, litað járn er á þaki. Heildarstærð eignarinnar er 212m2 og er sambyggður bílskúr 32,2m2 þar af. 
Nánari lýsing:
Neðri hæðin skiptist í forstofu, hol, baðherbergi, þvottahús, svefnherbergi, stofu og eldhús. Flísar eru á gólfi í forstofu, holið er parketlagt og þar er stigi upp á efri hæð. Parket er á gólfi í stofu og svefnherbergi. Flísar eru á gólfi í eldhúsi og þar er snyrtileg eikarinnrétting. Baðherbergið er flísalagt en þar er innrétting og hornbaðkar. Þvottahúsið er með dúk á gólfi, þar er stór innrétting og hurð útá baklóð.
Efri hæðin skiptist í hol, baðherbergi og 3 svefnherbergi. Parket er á gólfi í holi og herbergjunum, innaf hjónaherbergi er stórt aflokað fatarými. Baðherbergi er flísalagt, þar er innrétting og sturta.
Innkeyrsla er hellulögð, stór hellulögð verönd með skjólveggjum er á lóðinni. Lóðin er gróin og snyrtileg.
Staðsetningin er mjög góð en eignin stendur innarlega í lokuðum botnalanga.
Skemmtilegt fjölskylduhús á frábærum stað á Selfossi.
Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.