ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:Brúarstræti 1.
Falleg íbúð í lyftuhúsi í nýjum miðbæ á Selfossi.
Eignin er skráð 78,4 fm og er á efstu hæð.
Að innan skiptist íbúðin í anddyri, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.
Vandað parket er á gólfum og flísar í votrými. Góður fataskápur er í anddyri og geymsla er innan íbúðar.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og gólfsturtu, gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara inn á baði.
Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni með fallegu útsýni yfir Ölfusá og Ingólfsfjall.
Stofa og eldhús eru í opnu rými, loft er upptekið sem gefur rýminu skemmtilega nærveru. Parket er á gólfi og útgengt á svalir.
Smekkleg innrétting er í eldhúsi með steinborðplötu.
Fallegt útsýni er úr íbúðinni bæði yfir Ölfusá og yfir nýjan miðbæ.
Íbúðin er svansvottuð og er sér loftskiptikerfi í íbúðinni.
Lyfta er í húsinu og sameign er snyrtileg. Dyrasími með myndavél við inngang sem veitir öryggi.
Björt og skemmtileg íbúð í nýjum og skemmtilegum miðbæ á Selfossi.Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga
arborgir@arborgir.is