ÁRBORGIR SELFOSSI S. 482 4800 kynna í einkasölu.Gott og vel viðhaldið einbýlishús í grónu hverfi á Selfossi. Húsið er timburhús klætt að utan með litaðri timburklæðningu, bárujárn er á þaki. Heildarstærð eignarinnar er 202,6m2 og er sérbyggður bílskúr 41,8m2 þar af.
Að innan skiptist eignin í forstofu, þvottahús, baðherbergi, gestasnyrtingu, 4 svefnherbergi, sólstofu, stofu og eldhús.
Harðparket er á gólfi í forstofu og þar er fatahengi. Gestasnyrting er parketlögð, þvottahús er með flísum á gólfi og lítilli innréttingu, búr er innaf þvottahúsi. Eldhúsið er parketlagt og þar er nýleg innrétting með góðum tækjum. Herbergin eru parketlögð og eru fataskápar í þeim öllum. Baðherbergi er nýlega endurnýjað, þar er “walk in” sturta og góð innrétting. Flísar eru á gólfi og hluta veggja. Stofan er rúmgóð, loft er upptekið og parket er á gólfi. Í stofu er útgengt í sólstofu. Sólstofan er flísalögð og þar er arinn. Nýlegt þak er á sólstofunni. Rennihurð er útá baklóð í sólstofu. Bílskúr er klæddur og snyrtilegur, tvær geymslur eru innst í skúrnum. Eignin hefur verið talsvert endurnýjuð, húsið var einangrað og klætt að utan árið 1995, nýlegt járn er á þaki og ofnar voru endurnýjaðir 2004.
Á baklóð hússins er sólpallur innkeyrsla er hellulögð og lóðin er gróin og skjólgóð.
Í heildina er um að ræða gott og vel staðsett einbýlishús í grónu og skjólgóðu hverfi.
Eignin getur verið laus með stuttum fyrirvara.ath seljendur skoða skipti á minni/ódýrari íbúð!Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.
arborgir@arborgir.is