ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna:Skemmtilega hannað parhús í nýju hverfi á Selfossi sem er tilbúið til afhendingar fljótlega. Húsið er timburhús klætt að utan með lituðu járni, litað járn er á þaki. Heildarstærð eignarinnar er 175,7m2 og er sambyggður bílskúr 36,1m2 þar af. Samkvæmt teikningu skiptist húsið í forstofu, baðherbergi, hol, 4 svefnherbergi, stofu og eldhús auk bílskúrs.
Húsið skilast fullbúið að utan og tilbúið til spörtlunar og málningar að innan.
Eignin er mjög vel staðsett en hún stendur rétt við nýjan grunnskóla í hverfinu.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.