ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu.Mjög snyrtilegt einbýli í grónu og skjólgóðu hverfi á Selfossi.
Húsið er steypt, múrað og málað að utan, bárujárn er á þaki. Heildarstærð eignarinnar er 160,4m2 og er sérbyggður bílskúr 46,4m2 þar af.
Að innan skiptist húsið í forstofu, baðherbergi, þvottahús,
4 svefnherbergi, stofu og eldhús. Flísar eru á gólfi í forstofu. Stofan er rúmgóð og parket er á gólfi.
Parket er á gólfi á gangi og öllum herbergjum, fataskápar eru í tveim herbergjanna. Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir, þar er innrétting og gólfsturta.
Eldhúsið er flísalagt og þar er góð innrétting. Dúkur er á gólfi í þvottahúsi, innaf þvottahúsi er búr en hurð er útá baklóð úr þvottahúsi.
Bílskúr er klæddur og málaður.
Stór sólpallur með skjólveggjum og heitum potti er á baklóð, nýlegur sólpallur með skjólveggjum er á framlóð hússins. Lóðin er gróin og mjög snyrtileg, innkeyrsla er malbikuð.
Góð og vel staðsett eign.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.