ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna:Fallegt og mikið endurnýjað einbýlishús í Þykkvabænum. Húsið er skráð 81,7m2 að stærð en samkvæmt eiganda er það um 110m2 í heildina. Eignin er á tveim hæðum og hefur verið endurnýjuð mikið í gegnum árin. Húsið var nýlega einangtrað og klætt að utan með lituðu járni og er einnig nýlegt járn þaki. Neðri hæð skiptist í flísalagða forstofu, þvottahús, tvö svefnherbergi, stofu, eldhús og nýendurnýjað baðherbergi. Gólf í þvottahúsi er málað, parket er á stofu og eldhúsi en lökkuð gólfborð eru á herbergjum. Baðherbergi er með dúk á gófli, þiljur eru á veggjum en þar er falleg innrétting og sturta. Fín innrétting er í eldhúsi. Efri hæð skiptist í stofu og 3 herbergi. Húsinu hefur verið haldið mjög vel við í gegnum árin og hefur það verið mikið endurnýjað og er í mjög góðu ástandi.
Lóðin er um 900m2 að stærð, öll gróin og lítill geymsluskúr er á lóðinni.
Í heildina er um að ræða fallegt og mikið endurnýjað hús í rólegu umhverfi.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.